Undir Skyggðarhaldi

歌手: Andavald • 专辑:Undir Skyggðarhaldi • 发布时间:2019-06-06
Alvaldur,
alvaldur konungur neðra.
Upphimins sólir, þig tignandi
fara sinna ferða.

Himnanna tjöld, geimanna fjöld,
lofa þig lávarður neðra

Á himnum í heiði ofar
þig hrapandi stjörnumergðin lofar.

Hlekkjaðir vér erum, undan andavaldi.
Við hettu þinni klæðumst þjáðir,
undir skyggðarhaldi.

Hryggðarsporin, herra minn
í neðraríki leið mig inn.

Ég sá himnana rifna;
úr gapandi tóminu
teygðu sig angar, fálmarar
í hinum ónáttúrulegustu litum
sem engin hafa nöfn.

Þar við fallinna englaskarans
fölsku sigursöngva,
þér hörpur óma í hverfulum
feigðarboðahljóma.

Gegnum svarta sali
til hins neðra,
sálir þessar munu aldrei
til sinna feðra safnast.
📥 下载LRC歌词 📄 下载TXT歌词

支持卡拉OK同步显示,可用记事本编辑