Jólin eru okkar

歌手: Baggalútur Valdimar Guðmundsson BRÍET • 专辑:Jólin eru okkar • 发布时间:2020-12-05
作词 : Bragi Valdimar Skúlason
 作曲 : Bragi Valdimar Skúlason
 Jólin eru kertaljós og knús
 Kanilangan, pikarkökuhús.
 Jólin eru minningin um það
 Sem einhvern tímann
 Fann sinn hjartastað og settist að.

 Jólin eru gleði og glæný bók,
 Gömul mynd sem einhver forðum tók,
 Jólin eru endurtekningin,
 þau eru barnsleg eftirvæntingin,
 í sérhvert sinn.

 Jólin eru okkar og allt sem fylgir þeim,
 Dyr inn í töfra heim.
 Jólin eru okkar og hvernig sem allt fer.
 Ég óska mér,
 að eyða þeim með þér.

 Jólin eru ljúfsár leyndarmál
 lágnætti og mandarínuskál
 Jólin eru tími fyrir blund af löngu tímabærum endurfund,
 Við liðna stund.
 Jólin eru máðar minningar
 Sem mildilega fegra allt sem var
 Jólin eru sáttmáli um frið sem við gerum allan heiminn við
 Hlið við hlið.

 Jólin eru okkar og allt sem fylgir þeim,
 Lýsa upp töfra heim.
 Jólin eru okkar og hvernig sem allt fer,
 Ég óska mér að eyða þeim með þér.

 Jólin eru okkar og allt sem fylgir þeim,
 Lýsa upp allan heim.
 Jólin eru okkar og hvernig sem allt fer
 Ég óska mér (þess eins)
 Að eyða þeim með þér.
📥 下载LRC歌词 📄 下载TXT歌词

支持卡拉OK同步显示,可用记事本编辑